Maturinn á að vera upplifun og hafa bragð.
- fifum1
- Nov 13, 2015
- 1 min read
Brakandi ferskt spínat og kjúklingur með sesamfræum er uppistaðan í þessum rétti.

Kjúklingasalat með sætum kartöflum og mangó
4 kjúklingabringur
Paprikukrydd, rósmarín, sesamfræ, salt og pipar
Ólífuolía
1 stór sæt kartafla
Spínat
1 agúrka
¼ rauðkálshaus
1 mangó
Kjúklingabringur eru skornar í litla bita og settar í plastpoka. Paprikukryddi, rósmarín, salti og pipar er bætt í pokann ásamt sesamfræum. Hristið pokann. Kjúklingabitarnir eiga að vera þaktir kryddinu. Þá eru þeir steiktir á pönnu upp úr ólífuolíu og síðan settir til hliðar.
Sæta kartaflan er afhýdd og skorin í litla teninga, sett í eldfast mót og kryddað með rósmarín, salti og pipar. Allt vætt með ólífuolíu. Bakað í 15 mín. í 200°C heitum ofni. Hrærið í kartöfluteningunum á meðan á eldun stendur svo þeir brúnist á öllum hliðum.
Spínat er skolað og sett á stórt fat, agúrkan skorin niður og bætt út í ásamt niðurskornu rauðkáli. Mangó er skorið í litla teninga og sett yfir salatið. Ofan á þetta fara síðan kartöfluteningarnir og kjúklingabitarnir.
Komentarze