top of page

Rikken-chicken

  • Writer: fifum1
    fifum1
  • Nov 17, 2015
  • 1 min read

Rikken-chicken er uppáhalds réttur fjölskyldunnar. Rétturinn er nefndur eftir yngri syninum sem á allan heiðurinn af uppskriftinni. Bon appetit!

Rikken-chicken

4 kjúklingabringur

4 hvítlauksrif

1 laukur

1 chilly rautt

1 paprika rauð

1 rjómi (1/4 L)

Ferskt kóriander, búnt

Hvítvín, matar eða venjulegt. Má sleppa.

Matarolía til steikingar

2 dl Hrísgrjón

Krydd td. Seasonall eða annað svipað.

Aðferð:

-Setjið hrísgrjónin í pott og vatn (hálfan pott) og smá salt. Stilla á hæsta straum, láta suðuna koma upp og lækka hitann. Passa að það sjóði ekki upp úr. 20 mín. hvít grjón 30 mín. brún grjón. Með hvít grjón má slökkva eftir 10 mín og láta bíða í pottinum undir loki.

-Skerið lauk, hvítlauk, chilly og papriku smátt og geymið í skál. Byrja á að skera grænmetið svo það smitist ekki af kjúklingnum.

-Skerið kjúklingabringurnar langsum í tvennt, samtals 8 bitar.

-Steikið kjúklinginn á öllum hliðum á heitri pönnu með matarolíu og kryddið (season all eða pipar og salt) 5-10 mín. Gott að setja smá skorinn hvítlauk og nokkur kórianderblöð með.

-Takið kjúklinginn af pönnunni og geymið á disk.

-Hellið öllu grænmetinu á pönnuna, bæta smá olíu og steikið í 2 mín

-hellið (hvítvíni 1 dl) og rjóma út á pönnuna, hrærið og lækka hita.

-Bætið kjúklingnum út á pönnuna, og látið malla í 10 mín á vægum hita.

-saxa kóriander lauf og nota þau til að dreifa yfir matinn á disknum.

-Hella vatninu af hrísgrjónum.

Tilbúið

Gott að að hafa grænt salat með.

Varíasjón: Beikonsneiðar steiktar í ofni og saxaðar yfir réttinn þegar tilbúið.

Comments


© 2023 MatarStef unnið með Wix.com

bottom of page