top of page

Ást er að elda(st) saman

  • Writer: fifum1
    fifum1
  • Nov 17, 2015
  • 1 min read

Lax er dásamlegur matur og salatið er mitt uppáhald.

Grillaður lax með spínatsalati og steiktum krydd-hrísgrjónum.

Laxaflak eða bitar

spínat einn poki

1 mangó

1 askja jarðaber

hrísgrjón

frosið wok grænmeti hálfur poki

kryddpoki t.d. green curry (Asíu-deild í matvörubúðum)

sesamfræ

balsamic sósa

olía

Hrísgrjón eru soðin og kæld. Laxinn er settur á plötu og kryddaður (nota álpappír undir) með olíu, sesamfræjum og helming úr kryddpoka. Laxinn grillaður í ofni í c.a 15 mín. Grænmetið er steikt í olíu á pönnu og hrísgrjónum bætt við ásamt restinni úr kryddpokanum. Spínat, mangó í teningum og jarðaberjum er blandað saman í skál. Basamik blöndu er hellt yfir eftir smekk.

Comments


© 2023 MatarStef unnið með Wix.com

bottom of page