Kjúklingur fyrir lífið
- fifum1
- Dec 8, 2015
- 1 min read
Einfalt, þægilegt og fljótlegt eru lykilorð fyrir þennan rétt.

Kjúklingur með sætum, spínati og fetaosti
4-5 kjúklingabringur
1 poki spínat
1 stór sæt kartafla
1 krukka fetaostur
1 lítill rauðlaukur, skorinn fínt
1 askja heilsutómatar eða konfekttómatar, skornir í tvennt
Cashew hnetur
Balsamic gljái, má sleppa
Fajitas krydd eða annað krydd
Salt og pipar
Ólífuolía
Hitið ofninn í 180°. Skrælið og skerið sætu kartöfluna í sneiðar. Látið kartöflusneiðarnar í eldfast mót, hellið smá ólífuolíu yfir, saltið og piprið og setjið inn í ofn í 15 mín. Skerið kjúklingabringurnar í munnbita, steikið á pönnu og kryddið með fajitas kryddi (eða eftir smekk). Þegar kartöflurnar hafa verið í 15 mín. í ofninum eru þær teknar út. Setjið spínat yfir kartöflurnar og kjúklinginn ofaná spínatið. Stráið tómötum og rauðlauk yfir og hellið að lokum fetaostinum og hluta af olíunni yfir allt. Rétturinn er síðan bakaður í ofni í 30 mín. Á meðan rétturinn er í ofninum eru cashew hneturnar ristaðar á pönnu og stráð yfir þegar rétturinn er tilbúinn. Fyrir þá sem vilja er gott að dreypa smá balsamic gljáa yfir.
Commentaires