Miðjarðarhafs saltfiskur
- fifum1
- Dec 9, 2015
- 1 min read
Eftirlæti eiginmannsins

Miðjarðarhafs saltfiskur
600 gr útvatnaður saltfiskur
Hveiti
Hvítur pipar úr kvörn
1 dl olía til steikingar
1 stór laukur, saxaður
2 saxaðir hvítlauksgeirar
100 gr tómatamauk
Vatn
1 búnt söxuð steinselja
1 pk. Ferskar eggjapastaskrúfur
Ólífur
Sjóðið saltfiskinn, kælið og hreinsið. Hlutið fiskinn í hæfilega bita. Blandið saman hveiti og pipar, veltið saltfiskbitunum upp úr blöndunni. Hitið olíu á pönnu. Hristið umframhveiti af fiskbitunum og brúnið þá á öllum hliðum í heitri olíunni. Færið upp úr og haldið heitum í ofnföstu móti. Bætið saxaða lauknum, hvítlauknum og síðan tómatamaukinu á pönnuna og síðan vatni þar til sósan er orðin hæfilega þykk. Látið sjóða við vægarn hita í 4-5 mín. Pastaskrúfur eru soðnar eftir leiðbeiningum á pakka. Tómatsósunni og pastaskrúfunum er hellt yfir fiskinn og saxaðri steinselju stráð yfir ásamt skornum ólífum.
Comments