top of page

Föstudagssúpa Stefu

  • Writer: fifum1
    fifum1
  • Feb 5, 2016
  • 1 min read

Föstudagssúpa Stefu er frábær á vetrarmánuðum þegar kalt er úti.

1 laukur

3-4 hvítlauksrif

1 rautt chilly

2 msk. engifer

1 gulrót

1 líter kjúklingasoð

2 msk. rautt karrý

2 msk. kókósolía

Ferskt kóríander

Grillaður kjúklingur

Saxið smátt lauk og hvítlauk og léttsteikið í olíunni. Skerið chilly, engifer og gulrót smátt og bætið í pottinn og látið mýkjast. Bætið rauðu karrý og hrærið saman við grænmetið. Þá er kjúklingasoðinu og kókósmjólkinni bætt við og látið sjóða við vægan hita í 20 mín. Grillaði kjúklingurinn er skorinn í smáa bita og bætt í pottinn og hitaður í súpunni í c.a. 5-10 mín. Smakkið og bætið salti og pipar ef þarf. Fersk kórander borið fram með súpunni ásamt t.d. LKL brauði.


 
 
 

Comments


© 2023 MatarStef unnið með Wix.com

bottom of page